Bringurhár? Va?
Myndir
17.06.2006 11:45:36 / ólöf h

Já það líður að endalokum

Nú er tími minn hér liðinn undir lok... hér blogga ég í hinnsta sinn.. :cry: en hertu þig upp gamli vinur! :!: ég er af og frá dauð og búin að leggja mig í dvala.. ég hef ákveðið að skirfa bók eftir sjálfa mig8) þú mátt vænta hennar bara næstu jól... tilvalin í júlepakken:) vegur aðeins 700 gr og kemst í rassvasa...  og ég veit að tíminn er lengi að líða fram að jólum því það eru allir svo spennti að fá pakka..

svo ég ákvað að halda áfram að bloggettí blogg á www.belgurinn.bloggar.is


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 19:54:10 / ólöf h

Ég er að fara að borða grjónagraut

Loksins blogga ég:) ég hef beðið eftir þessu sjálf og er ekki frá því að fleiri hafi gert það líka:) það er ekkert að frétta af mér að vanda nema það að á næsta laugardag þá fæ ég bílpróf! og það ekki úr kexpakka eins og sumir eiga eftir að halda eftir að ég fer að skjótast um allt á rauðu þrumunni hennar mömmu;) jé beibí.. ég fæ þetta á alveg löglegum ástæðum! Ég er hérna farin að keyra um allt í ökukennslu einn einu sinni og Torfi nýji kennarinn minn segir mig alveg nokk góða:) þó svo að maðurinn hafi þurft að redda mér nýrri bók og alskonar stimplum sökum þess að ég brenndi ökukennslubókina í einhverju bræðiskasti8| fólk hlýtur að skilja það að ég á ekkert að þurfa að fara að taka blessað bóklegaprófið í 3ðja sinn! og ég sem náði því í örðu! ohh.. heimska heimska:) haha.. en já svo hef ég verið að frétta það hér um bæinn að fólk sé farið að verða sér út um bílskúra á hinum ýmsu stöðum til að koma í veg fyrir það að ég falli í prófinu;) eða ég vil halda það! nema það sé að forðast tjón á mínum vegum.. og það skil ég engan veginn því að ég finn þessar bíldruslur þó svo að´þær séu á bak við lás og hurð:klikk: ahaha..  Ég var beðin um að taka þátt í fótbolta í morgun8| haha.. og það með fullt að áhorfendum um sjómannadagshelgina! nei takk ég þakkaði bara kærlega fyrir mig og sagði að ég myndi bara hlaupa á næsta vegg þó svo að það væri enginn veggur sjáanlegur!8) þá var mér bennt á markið en nei takk ómögulega..  en ég fór í heilun um daginn.. það var aldeilis upplifun en samt eftir þessa undarlega meðferð þá gekk mér ekkert allt í haginn.. lenti smá uppá kannst við Þóru en það er komiði í lag allt júranu að þakka:) svo um helgina hélt ég að ég væri að verða geðveik! ég var að vinna hjá Brynju og húsið er svo skakkt að ég var mikið í því að biðja um flutning! eldhúsborðið var aldrei beinnt! ég var endalaust að breyta því og enn þann dag í dag er það ógeðslega skakkt! arrg! svo var ég að æfa mig í þrifum:) vaska upp og svona.. eða meina setja í uppþvottavélina:) og ég var búin að vera dugleg við það að drekka LGG+ og svo voru þær þarna og ég bara sakleysið uppmálað fæ bara tappana í hausinn á mér! mér er sama þó mér sé trúað eða ekki en grín laust þá gerðist þetta:!: og mér svona létt brá og held að guð hafi verið að refsa mér fyrir að vera ömurleg vinkona eða eitthvað!  Svo í dag hafa pöddur ásótt mig! ég fór í sturtu í morgun fyrir vinnuna og nei eru ekki bara maurar sem hlaupa um allt og ég stekk út og dó næstum! svo fer ég vinnuna í sjoppen og er að fara að skúra og er að setja vatn í fötuna og þá hlaupa þarna 3 járnsmiðir að mér.. ég hrekk í kút og öskra! og kemur ekki gömul kona hlaupandi á bak við og heldur bara að einhver hafi verið að drepa mig:S úps.. hefði getað ollið hjartaáfalli! og svi þegar ég segji henni að þetta hafi bara verið vegna skriðdýra deyr hún næstum úr hlátri! þar hefði ég getað valdið dauða! svo þegar ég segji henni að það hafi verið lán í óláni að þetta hefðu bara verið maurar en ekki flugur því þær hefðu náð mér auðveldlega þá var hún alveg hlessa og kallaði mig dúllu:) tanke tanke... en er að fara að leika við Vilhjálm.. hann kannski bíður mér á rúnnt á kagganum:) en já svo smá fréttir af rauðmaurunum! þeir eru þarna enn:) fann samt bara einn áðan og leyfði honum að lifa vegna þess að það er svo vont veður úti.. og svo um leið og ég var farin að ræða við hann um leiðindaveðrir skjótast miljón rauðmaurar fram:) og ég má ekki mismuna maurum svo þeir fá allir að lifa!!!!:D en vá mér finnst ég verða leiðinlegri og leiðinlegri með degi hverjum svo að ég hugsa að ég fari að hætta þessu blogg lífi!


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 22:25:06 / ólöf h

Blákaldur sannleikur

Vinir mínir rauðmaurarnir eru enn! og ég veit bara ekki hvað ég að gera?? er einhver með uppástungur? ég hef forðast það að hætta mér nærri eldhúsinu og hef eiginlega bara ekkert farið þangað í langan tíma:) Ég komst að því í dag að mér kippir í kynið:) pabbi kom og keypti hjá mér þrjár pylsur! er mikið að pælí því að hafa samband við Sveppa og etja kappi milli hans og pabba:) held að pabbi myndi taka sveppa í nösina:) en ég meina ég gef þessu aðeins...  ég átti ágætan dag í dag að vanda enda engin önnur ástæða til:) nema það að hann byrjaði ekki nógu vel8| ég á það víst til að vera smá viðskotaill á morgnanna og það vildi svo vel til að ég þurfti að vakna fyrir allar aldir í morgun vegna þess að ég þurfti að fara að þrýfa einhverja íbúðardruslu! heyrðu.. ég tek Hildi systur á ein tal í gærkveldi og fæ hana til að vekja mig áður en hún færi í skólann það fór bara ekki betur en svo að ég skellti á andlitið á henni með þeim hörmungum að ég tek snerilinn úr og hendi honum svo fram og loka hurðinni! úps:$ fer svo bara aftur að sofa;) og það við hliðina á Steinku syst vegna þess að ég gisti heima hjá mömmu:) en hún var samt voðalega þreytt því hún fór svo seint að sofa sökum þess að hún á í ástarsambandi við msn frá kl 8 á kvöldin til 4 á nóttunni;) svo að hún var ekkert að kippa sér upp við lætin:) heyrðu já svo átti ég að mæta í þrifin kl 9 en svo um hálf 10 þá vakna ég við súran andvara! sem var ekkert annað en fýlan útúr steinku! hafði þessa væna systir ekki bara troðið nefinu á mér uppí sig og næsta höfn var bara að hún færi að sjúga úr mér horið! ojj! ég stekk svona vel upp og frussa á hana! hún er veðbjúður! ég veit! svo tek ég eftir klukkunni og ætla að stökkva fram á klóið! nei! enginn snerill! shitturinn titturinn! ég var læst inni! á endanum þegar ég var búin að reyna að nota allt frá tannstöngli til eldgamals jórturleðurs þá var hringt í mömmu og hún bjargaði mér..  en hvaða hvaða... ég nenni þessu ekki!


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 22:53:24 / ólöf h

Ósvífnin í þessum maurum alla tíð.. og þar sem ég er svo kurteis

Það sem á daga mína hefur drifið er bara ekkert sem tönn á festir!.. en eins og ég hef alltaf haldið fram þá er ég aldeilis góð í því að nota orðatiltæki:) Ég er flutt í pappakassann og unni vel þar;) fyrir utan smá vandamál sem blossaði upp í dag.. og ég vona að faðir minn bjargi sem snarast...:!: það er nefnilega svo mikið þannig að ég vakna ein í kotinu því að ég er ekki enn búin að finna minn eina sanna drauma kött8) ég fæ mér þarna te og kaffi.. (þá er ég að tala um eitt stykki snikers og kristal) lít ég ekki svona útundan mér og verður mér ekki litið á einhverja rauða depla sem skjótast um allt8| ég alveg sturlast og stekk svona vel heila manns hæð eins og mér einni er lægið.. og ég sé það bara fyrir mér að ég er bara að verða eitthvað sjóndöpur eða etv bara geðveik! nei svo fer ég og grand skoða þetta ógeð:!: þá eru þetta bara helv.. rauðmaurar:^) .. en ég hef lært að meta allt það góða í öllum;) svo að ég lít á þetta sem vini mína um stundar sakir sökum þess að ég finn mér engan kött sem er mér samboðinn:)..    Ásdís saup hveljur áðan þegar við litum aðeins yfir bloggið mitt! við vorum eitthvað að aðgæta gestabókina mina hér at belgur... heyðru litli frændi minn á ak búinn að vera að hugsa sína þungu þanka hér um það hvort Ólöf sauðurinn í fjölskyldunni væri bara lessbíen.. og Ásta litla í Hænuvík sem er ekki búin að ná 12 árunum voru búin að kvitta..  Ásdís segir ; '' neeee.. bara fréttirnar búnar að berast um víðann völl og þá er sagan öll.. á akureyri og nú Hænuvík!.''   (sagt með svona smá skelfingu).. en annars hef ég upplifað einn versta dag ævinnar! en hann hefur batnað með kvöldinu en allt vegna þess að ég talaði við Möggu og nú er það ákveðið að bæði hún og Kristel ætla að koma yfir sjómannadagshelgina:D Ég ætla að fara suður aðeins fyrir þessa tilteknu helgi og svo ætlum við bara að taka á okkur smá tripp og leggja land unndir fót...! þetta verður geggjað:) Svo hef ég verið að reyna að fá Beggu og Ölmu! en það gengur ekki eins vel og ætla mætti! humm? stelpur! Begga er eitthvað svo spennt fyrir hamingjudögur á Hólmavík?? hvaða hvaða? en Alma ætlar að koma!  ég hef ákveðið það..takk fyrir takk! og Begga elskan líka:D svo Ragna líka og fleiri svona dúndur skvísur! ... en ég er að fara að taka labbi rúnt svo að ég verði mjói spói! ég er nú að fara til helv.. benidorm og þar eru nú bara kroppar af guðsnáð! og ég vil ekki vera feitasti selurinn og þar að auki hvít sem lík.. en ég hef orðið mér út um töflur sem ég fer að demba í mig sem eiga að gera húðina á mér ekki eins viðkvæma og taka betur við sólinni! og svo eiga þær víst líka að viðhalda litnum sem ég fæ betur! svo að það er eins gott að ég verði ekki rauð í staðin fyrir brún.. því ég nenni ekki að vera kölluð Eiríkur rauði um ókomna tíð! nóg um það að ég sé kölluð; skattakóngurinn mikli, miss kærulaus, ellismellur, letihaugur, frekjan, rauðka, Fjólöf, standpína, olla h, og margt fleira...! nenni ekki að standa í því að fá á mig fleiri uppnefni8| .. en já um að gerast mjór sem snöggvast! hér með kveð ég útí kvöld kyrrðina sem umlíkur hús patreksfjarðar af mikilli þrjóksu og fælir í burtu pöddur sem angra mig í dagsins önn.. nóttin er minn tími!


» 19 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 18:33:01 / ólöf h

Fikra mig áfram

Það vakti ekki mikla lukka mitt seinasta blogg.. um tíma hélt ég að faðir minn eini sanni hefði afneitað mér en svo kom annað í ljós..! Hann elskar mig enn:D Ég komst líka að því að það lesa furðulegust andskotar bloggið mitt:!: ég hefði ekki trúað örðru eins! Gústi gamli kennarinn minn á það til að renna yfir þetta hjá mér og þess vegna held ég að ég verði að fara að gæta mín á orðavalinu og stafsetningu! hann má ekki halda að uppeldið sem ég fékk hjá honum hafi bara fokið útí veður og vind! það væri nú ekki beint spennandi fyrir hann! og hvað þá fyrir mig því þá væri ég alveg bara grjót heimsk sem ég er ekki fyrir:!: 8| þó ég sé svona óvegnju lík móðu stundum þá á ég mér mínar góðu stundir inná milli þegar ég les hér og nú í sjoppen:) .. Ég hef ákveðið að fikra mig áfram í lífinu! Fólk sem þekkir mig lítið eða ekkert það tók gamla bloggið full alvarlega en þeir sem þekkja mig vita að það er varla 20% af því sem ég blogga sannleikurinn! flest er þetta bara rugl því mér leiðist svo! það sem ég geri fyrir utan það að vinna, sofa og blogga er að fara í sims! og sims er sko leikur sem fólk býr sér til nýja ímyndaða fjölskyldu! svo að það er rétt svo eðlilegt að ég sé orðin geðveik:) .. Og ég er eiginlega alveg viss um það að ég hefði ekki verið að blogga um þennan draum og það hvort að ég væri ekki bara lessa nema ég væri viss um mína kynhneigð:) og ég tel mig vera vissa en hver veit nema ég komi úr skápnum einhverntíman.. það er nú einn risa skápur í nýja herberginu mínu svo að ég gæti alveg boðið fleirum með:)... Og ég er alls ekki að reyna að hæða samkynhneigt fólk að neinu leiti! alls ekki!..


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 22:38:06 / ólöf h

Lessbíen eður ei?

Ég er búin að fá staðfest skriflega að ég er ekkert annað en lessbía.. en það er ekki meira en svo að mér dreymdi svo klúran draum í nótt að ég hef ekki einu sinni upplifað annað eins í veruleikanum og ekki skil ég hvar ég hef áður séð allt þetta klúra.. nema kannski úr öllum þessu klámblöðum sem ég hef stundað svo grimmt frá barnæsku að skoða:!: En ef ég á að segja frá draumnum þá var það bara þannig að ég og Þóra áttum í voðalega klúrum samskiptum...eða allavega ég! og svo vakna ég í morgun og það við hliðiná Þóru! var samt ekki alveg viss um hvoert þetta ævintýri hafi átt sér stað eða hvort þetta hafi verið draumur! svo að ég haska mér út sem snarast8| svo er bara mætt í vinnu og unnið að kappi samt var þarna alltaf á bak við eyrað á mér draumurinn! sem ég vissi ekki hvoert ég hafi upplifað í vöku eða draumi! svo mætiur vinurinn minn mikill í sjoppen með fullt af 13 kg gas kútum og ég þurfti að gangea frá þeim og það fékk mig til að hugsa enn meira um það hvort ég væri ekki bara trukkalessa! en held það nú varla því trukkalessa hefði bara tekið þessu með trompi og gengið frá þessu:!: ég byrjaði að væla og gaf frá mér mikla pirrnigssvipi og blótaði og var ekki svo sátt:$ hendurnar á mér bólgnuðu og svona svo að ég yrði allavega ekki trukkalessan í sambandi okkar Þóru.. svo að þá er bara einn eftir og það er Þóra svo að þóra er tukkurinn;) haha.. en já það er ekki nóg með það svo mæti ég í kvöldmat hjá tengdó því Þóra og hún elduðu svona gómsætt grænmetis lassanja:) góður kokkur hún kvennsa mín:D  svo eftir mat þá förum við að glugga í draumráðningabók og viti menn þar er ég með það skirfað svart á hvítu að ég er samkynhneigð! svo höfum við hjónakornin fundið myndir sem ættu að gera það alveg ljóst að við eru öðruvísi en aðrir landsmenn;)

IMG_8494

ástin gerir ekki boð á undan sér

IMG_8493

Já love is in the beer!....

en eins og ég hef aldrei sagt áður svona opinberlega þá hef ég mikið verið að hugsa um það hvort það gæti staðist að Þóra væri mín eina sanna ósk en hef alltaf leitt það hjá mér en eins og draumabókin sagði : Kynferðislegir draumar- áður fyrr ollu kynferðislegir draumar fólki miklum áhyggjum því talið var að þeir gætu valdið geðveiki:klikk: nú til dags eru slíkir draumar losa um kynferðislega spennu og geta líka endur speglað langanir! flestir eiga sér óskir og þrár sem þeir hafa lært að bæla niður því þær virðast óraunhæfar! menn geta jafnvel um tíð og tíma gleymt þessum löngunum en þær geymast í undirmeðvitundinni og geta birst í draumum.8| og eins og bókin segir hún lýgur ekki!.. og hér er ég með bók sem nefnist bókin með svörin og hún segir þegar ég spyr hana ; er ég samkynhneigð?  NEI.....:!: JÁ MINN BANDAMAÐUR! En tvíkynhneigð? NEI!!!!..  Þá er það komið á hreint ég aðhyllist venjulega kynlöngun þrátt fyrir drauma eða myndir.!: eða það sem Júrað öskrar á mig! .. En við komumst að niðurstöðu og speninn heldur því fram að eg sé laumu trukkalessa:$


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 21:54:28 / ólöf h

Ólafur býr í pappakassa!

Það liggur vel á mér, það liggur vel á mér.. gott er að vera léttur í lund... lalalala:) ég er létt í lund núna:D en er eiginlega viss um að það orsakist af svefngalsa því að ég er búin að vera að vakandi síðan snemma í morgun... og búin að vera að mála síðan um 9 í morgun með málningu:) svo að kannski orsakast þessi kátína af hennar völdum.. en ef ég á að segja satt þá var það ekki ég sem málaði heldur bara pabbi:) ég sat og horfði á:) ég reyndi við það að reyna að mála helv.. ofninn en hætti því, því að það er aldeilis nokkurra daga verk! hefði átt að gera eins og egill og sleppa því að mála hann! svo ég reyndi hvað ég gat að múta litlu systrum mínum  og fá þær til að mála hann en það er eitthvað hætt að virka eins og það virkaði vel hér í denn... svo að ég skildi bara ofninn eftir illa málaðann og ljótan8| ákvað bara að reyna að koma af stað nýrri bylgju og hvur veit nema þetta hefði komið í veggfóður ef ekki hefði verið fyrir pabba.. hann skemmdi allt og málaði hann svona létt mátulega nógu vel svo að ég þurfti ekkert að standa í neinu brasi:haha: en ég er samt viss um að herbergið komist á síður blaðanna ekki eftir svo langa stund.. þetta er stærðsti pappakassi sem ég hef séð! en eins og ég var búin að nefna hér áður þá varð smá misskilningur með málninguna og ólöf kjánaprik var ekki neitt að haska sér í það að velja lit.. svo var eitthvað sem lét mig hundskast til að velja lit.. og ég var svo mikið búin að vera að pælí bjarnabrúnum eða jafnvel túllípana rauðum;) haha... en svo bara ákvað ég að leggja til atlögu og valdi litinn Hörin! ég get sagt þér það lesandi væni að þetta gæti þess vegna verið kallað pappakassi því liturinn er eins og á pappakassa! þannig að héðan í frá verð ég kölluð Ólöf í pappakassanum:) aldeilis gott:)...   ég hef samt bara staðið í ströngu.. bara búin að vera að vinna mikið eftir ósköp ljúft páskafrí... Já ég fékk sko frí! og það fjóra daga:!: Ég skellti mér meira segja á dansiball með hljómsveit á föstudaginn langa hér á Patreksfirði.. og þar held ég að ég hafi súft aðeins og stíft af tebollanum! (eins og ég sagði áður er ég farin að tala undir rós.. sökum þess að pabbi og ásdís lesa þetta)... ég danglaði aðeins í steinku syst því hún var að reykja og það er enn illska í gangi.. hún vill ekki lofa mér að gista uppí lengur! sem er algjör vitleysa...  svo fór ég í sveitina sem voðalega gott.. og svo kemur dagur á eftir þeim degi sem er mánudagur og þá mæti ég í vinnuna í sjoppen.. heyrðu ég er eitthvað voðalega viðutan og fullt að gera..og það vill svo vel til að þarna á þessu augnabliki var sjoppan full af fólki og ég hrasa svona með andlitið beint í gólfið fyrir framan pylsupottinn og ég hef aldrei vitað aðra eins skömm.. hvenig fer ég að þessu?  Og núna er ég orðinn þjónn á heimili Júlla og Jessicu því ég mætti ekki í bleiku! og vegna þess að ég dró þetta svo á langinn er ég þjónn þeirra í einu og öllu í tvo heila mánuði! hvernig kemst ég í svona klandur.. en það er kannski ekki svo slæmt því að ég fæ helling jéta.. fékk hráan fisk í gær:!: svo er verið að segja að ég sé slæm hæusmóðir! en hvað um það.. ég get ekki séð fram á það að þetta hafi verið skemmtilegt blogg:) en með þessum orðum kveð ég og stekk útí kvöldkyrrðina sem umlikur allan patreksfjörð;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 04:35:41 / ólöf h

Ég hef vængi!

sussum svei:!: ég get ekki sofið og svo virðist vera að marþonbloggið mitt var ekki að gera sig sem skildi8| ég sem var svo viss í minni sök að þetta myndi gera útslagið og ég yrði fræg! hélt að þetta yrði vatnið í tómu tunnunni:!: það er kannski bara þannig að ég verð ekkert fræg! kannski guð hafi áætlað mér eitthvað annað, að verða sjoppu daman alla tíð:$ neijjjj.. ekki gera mér það:!: það er mér bara ekki í blóð borið! það er kannski þess vegna sem ég hef reynt að gera ýmsar tilraunir til að verða fræg! ég reyndi idol en það fór eins og það fór;) haha.. okkur Beggu þyrsti bara svo í heimsfrægð! og svona til mikillar lukku fann ég mynd;) og svona í tilefni páska fær hún að fljóta með:)

Bjútífúl:!: get ekki sagt annað:!: hahaha´

Ólöf kærulausa er enn ekki búin að velja lit á herbergið sitt! og það er einhver illska í gangi! ég átti að vera búin að þessu fyrir hálfum mánuði:!: fyrir gefið mér pabbi og Ásdís8| því ég er viss um að þið séuð að lesa þetta núna:** munið bara að ég elska ykkur... og það sem er enn mikilvægara er að þið elskið mig eins og ég er með öllum mínum göllum! ég get samt alveg verið furðu skemmtileg stundum ekki satt? :) 

það styttist senn að páskum og ég sé það í móðu hvernig það var að eiga heilan dag sem ekki þarf að mæta í vinnu! það verður skemmtileg upplifun núna fljótlega:)

Ég fór í klippingu í dag og ég er með stutt hár:!: aaaahh! það er sko allt að gerast! en það var líka þannig að dagurinn í dag var ekki minn besti! ég ætlaði að vakna snemma og fara að velja málningu eins og ég hafði lofað:!::^) svo fór ekki! ólöf svaf yfir sig! hvernig er það hægt?? þurfti svoleiðis að stökkva á fætur rétt fyrir 12:cry: á fund hjá Arnheiði:) ég mætti rétt svo tímanlega:) fékk fastráðningar samning:!: talandi um það! til hamingju ungfrú kærulaus:) svo ég gekk í sæluvímu til föðurs! en nei enginn heima svo að ég gat ekki látið ykkur (pabbi og ásdís) vita! ég veit samt alveg að það er til víst fjarskiptatæki sem kallast sími en ég hef ekki mikla trú á honum! er miklu meira fyrir það að ganga á milli staða og segja fréttirnar sjálf8| eða er það ekki? en já svo að ég skundaði í vinnuna... vann stutt fór í klippingu.. fór til Þóru.. borðaði , þóra talaði í símann.. ég var til... uppá lofti.. sofnaði í sófanum kl 10:) vaknaði óhress og pirruð kl 12! skundaði í rúmið hennar mömmu! svaf óvært vegna helv... gúllí (sem er köttur!) vaknaði aftur um 2.. gat ekki sofið meira... og fór fram í tölvuna.. er þar enn en stefni að því að útskrifast eftir nokkur ár:) .. en ég held að ég fari að sofa núna.. gúdden natten alle sammen:) jeg hedder ólöf og jeg er 13 år gammel:) (tek það fram að ég á aðeins eina önn eftir í dönsku og þá er ég stúdent! en þetta er það eina sem ég kann... svo krakkar það er ekki svo mikilvægt að mæta í dönsku) :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 23:23:12 / ólöf h

Harðstjórinn

Ég hef mikið verið að hugsa um að stofna svona maraþon blogg síðu:!: svona án alls gríns! ég er búin að koma núna með þrjú blogg í röð og hvernig væri það ef að ég færi núna bara að taka þessu að einhverri alvöru og blogga bara tvisvar á dag? marþonblogg síða belgsins! það myndi alveg vera að gera sig í blogg heiminum í dag:) kannski ég kæmist í blogg dálkinn í DV?? Það hefur verið draumur minn lengi! það væri bara byrjunin á heimsfrægð minni8) haha... Ég fór í sturtu í gærkveldi sem er alveg nýtt fyrir mér.. hef ekki þrifið af mér skítinn í nokkra mánuði.. enda var táfýlan súr! og ég hef sigrúnu sem vitni! oj! ég hefði ekki trúað því að ég væri með svona úldnar tær! gvöð minn góður! svo að ég ákvað að gera eitthvað í þessu máli og sturtaði mig alveg frá toppi ofaní tær:D heyðu svo fer ég að sofa með blautt hárið og svo vakna ég kl 10 til að fara í vinnuna og var svona forkunnarfögur eins og alla aðra morgna! vá hvað ég er falleg úfin og vel til höfð á morgnanna;) svo skelli ég mér í vinnuna en ég fatta ekki fyrr en ég er mætt að ég er ekki í brókum, bara náttbuxunum mínum.. íþróttabuxum yfir og peysu sem ég passaði í þegar ég var 13 ára! það hefðu allir fallið fyrir mér þá! svo að ég ákvað að taka þessu sem skildi og taldi mér trú um að þetta væri nú bara nýjasta tískan8| svo áðan kem ég heim og nei! Steinunn anna helgadóttir litla systir mín sem ég á að gæsla á meðan mamma er fyrir sunnan yfir páska var bara með foreldra laust teiti! ég var ekki sátt og rak alla á dyr! ég hringdi nefnilega í hana´fyrr í kvöld.. það var ansi mikill ´hávaði svo að ég spyr '' ertu með partý krakki??'' hún '' nei bara anna og alex ætla að gista'' helvítis lygakvenndi8| svo að núna er ég ekki í uppáhaldi;) svona get ég verið ábirg:)  en hvað um það! ég skirfaði á símann minn '' Ólöf sóðakvenndi'' með olíutúss og það næst ekki af! hvað var ég að hugsa? ég hef reynnt allt! meira segja matarsóda! ég hef nú aldrei verið neitt góð í húsráðum svo ekki nema von8| en ég er farin að sofa:) kem með annað blogg eins fljótt og ég ræð við því ég er yrði ekki hlessa ef að þetta myndi slá allt út:$


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.04.2006 01:55:20 / ólöf h

Pólsk handbók staðfestir visku mína

Ég er að fara að sofa en.. ég hefði ekki sofið dúr ef ég hefði ekki komið með eitt svona tilgangslaust blogg í tilefni nætur;) .... ég af öllum var fengin í það að þrífa félagsheimili Patreksfjarðar núna í kvöld:!:  maður spyr sig hvers vegna svona á föstudagskveldi?? það var nú ekkert um að vera í gær! heyrðu jú maður minn það var víst heljar djamm hérna fyrir viku svo að ekki seinna en það að ég var send í svaðilför að þrífa viku gamalt piss og ælu þar að auki! barna þrælkun myndi ég kalla þetta! ojj:!: þetta var ógeðslegt! en hafðist þó fyrir rest! ég fann þarna einn leysigeisla eða eitthvað svakalega sótthreynsandi og skellti bara heilum brúsa á nýja parketið:) Þóra var nú ekki voðalega hrifin af hugmyndinni en ég var svo viss um að þetta myndi virka! svo var ekki! Hálviti! maður setur ekki svoleiðis á parket! það hefur aldrei verið mín sterka hlið að þrífa svo að þetta er svosem skiljanlegt:haha: en ég Júlis nokkur (mikill heimilisfaðir hér í bæ) kenndi mér að þrífa spegla í gær svo að ég komst hjá því að nota bón við það að þrífa þá eins og seinast;) haha... en hvaða hvaða:) er farin að sofa... ég skil ekki hvers vegna ég var að koma með þennan innihaldsríka pistil.. en þín tímaeyðsla að lesa hann! gúdden natten:)

ps: Pólverjunum hér í bæ finnst ég ótrúlega sniðug! og ég er fræg á meðal þeirra! þeir flikkjast í sjoppen bara til að heyra mig segja djin dobre og dovi senja! þeim finnst ótrúlega sniðugt að ég geti bara sagt þetta:D og hlæja ótrúlega af þessum hæfileika mínum! hver veit nema ég sé að segja ég er með hor í nefinu eða eitthvað?? ég verð að kaupa mér handbók týnda ferðamannsins í Póllandi! og vitiði hvað?? ég komst að því að Prins póló væri frá Pólandi:!: ég sem hélt að þetta væri al íslenskt eins og mars! eða nei mars er ekki íslenskt:!: gummi gat!;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 13:21:03 / ólöf h

Skattakóngurinn ríki

Skattakóngurinn Ólöf:!: það er sko aldrei lognmolla í kringum mig það get ég sagt! og það er endalaust mikið hvað ég get verið ótrúlega kærulaus! Það er nú nefnilega svo mikið þannig að ég á skattkort:) eða ég átti það nú ekkert lengi vel því ég glataði því og þurfti að sækja um nýtt og það drógst aðeins á langinn eins og allt annað sem er mikilvægt! svo að það var ekkert lítill peningur sem ég fæ ekkert fyrr en í Ágúst á næta ári sökum þess að Olla bolla skilaði ekki skattkortinu sínu fyrr en eftir 3 mánuði.. 8| bjána kjáninn8) svo fer ég óvart að nefna þetta þegar ég var að velja lit á nýja herbergið mitt:) vill sko BJARNABRÚNAN! HAHAH:haha: Pabbi maður sem hefur nú ekki mikið skap fór að verða örlítið rauður og illur en svo komu veðurfregnir og björguðu mér fyrir horn! gvöð sé lof fyrir veðurfregnirnar;) svo fékk ég Pabba og Ásdísi eiginlega að leifa mér að fá kött á neðri hæðina:) ég var eitthvað að tala um það að ég yrði svo agalega einmanna svo að kannski kannski;)  en er að fara að gera eitthvað að viti!... veiða birni eða eitthvað!


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.04.2006 13:22:37 / ólöf h

Alheimsfær draugabani!

Vegna þess að ég lifi svo ofboðslega spennandi lífi verð ég að koma með blogg:) Það er bara svo mikið að gera hjá mér að ég var varla að finna mér tímann í það að setjast fyrir framan tölvuna8| en maður reynir að hliðra til svona fyrir nauðsynjar:) haha! ég er náttúrulega alltaf að reyna að læra á flugvélina hans pabba og gengur bara vel þar að auki hef ég tekið mér auka starf sem læknir hérna á heilsugæslustöðinni sökum þess að ég er svo agalega klár og þar með þarf ég ekki að fara í læknisnám.. svo hef ég líka mikið verið að fara í ræktina og er bara orðin mjög mjó.. bara mjói spói:D mér hefur líka verið boðin staða í skólanum að kenna stærðfræði en ég hafnaði því.. það er mér ekki næg áskorun! ég vil frekar vera að gera heilasurða á fólki.. maður fær alveg fiðring í tærnar þegar maður er að ná út blóðtöppum8) svo hef ég líka verið að stunda það grimmt að fara á kvöldnámskeið í matreiðslu og kokkurinn James Oliver hefur verið að kenna mér ýmsa takta svo að þú lesandi góður getur rétt svo ímyndað þér hvað ég er orðin fær á mínu sviði:D ég hef  látið sjoppuna dalast upp í huga mér og alveg hætt að starfa þar... enda engin áskorun með því að setja sinnep ofaná pylsurnar;) .. svo hef ég líka verið að leika í nýrri kvikmynd sem á víst að hreppa óskarann og ætli ég fái hann ekki bara líka í hendurnar;) ......:!:   svo hef ég líka gengið í lið með draugabönum sökum þess að ég er svo svakalega skiggn óg hef verið að hjálpa við að rýma þekktustu draugabæli í Ameríkunni:) En svo vegna þess að ég er orðin þessi alheimsfæri kokkur, þekkti leikari, heilaskurðslæknir og draugabani þá er ég ógeðslega rík.. ég hef ákveðið að fara uppá sjoppu og gefa eina biljón kr af einskærri góðmensku:) en það er nefnilega málið að það eru ekki allir jafn góðhjartaðir og ég:) svo er núna bara um að gera að skella sér í sjoppen og láta reyna á það hvort að þú fáir ekki bara þessa biljón:):haha: skilirðin eru þau svo að þú fáir þessa biljón er að þú sért 175 cm, með eitt grænt og eitt bláttauga, feitur, með rautt sítt hár, með loðinn rass, freknur, flekkóttur eftir brúnkumeðferð, og með sjón eins og selur....!

Yfir og Út- dr.Ólöf mjói spói      


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 14:57:01 / ólöf h

Kötturinn og mállausi eigandinn

Ég er voðalega rík þessa dagana af snilldar hugmyndum svo að ég keypti mér frið hérna rétt áðan... það er víst svo að ég verð að vera dugleg og hjálpa stóru systur svo að ég passa þessa tvo brjáluðu engla hennar þangað til hún er búin í vinnunni kl 3 og þá fer ég í mína vinnu.. mamma greyið var að vinna í nótt og lítill svefnfriður... mér hefur dottið það í hug að fara með þá út í göngutúr en ég ætti að halda mér inni með þá því þeir eru svo andskoti spretthraðir og það hefur aldrei verið í minni deild að hlaupa.. venjulega endar það bara með því að hlaupa á vegg8| svo að ég ákvað að mála þá bara í framan eins og kött og eiganda hans og í köttum heyrist ekkert nema mjálm og eigandi kattarins er mállaus svo að þetta kallaði bara á frið:) en hvað um það! það er lítið að frétta...! ég er ný búin að ná mér uppúr alvarlegri flensu.. og lá við að ég myndi láta lífið! Ég af öllum lét allt á flot í sjoppunni! svona fer þegar ég er að skúra! þetta tók tvo tíma að þrýfa upp alla bleituna og héðan í frá er ég Lukkudýr smáalindar:D skil samt ekkert afhverju ég var að því að láta allt fara á flot! það bara varð eitthvað að toppadaginn:) haha..:) en hvað um það þá er árshátið fyrirtækjanna um helgina:) allir að fara nema ég! ég verð að vinna og enginn nennir að vinna fyrir mig! ohh.. ég ætla sko að hætta að vinna fyrir aðra þegar þeir biðja um það því maður græðir ekkert á því! en vá kötturinn og mállausi eigandinn eru komnir með raddbönd:!:


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 22:31:55 / ólöf h

Ólöf grefur stríðsöxina uppí fjalli

Ég varð nú fyrir aldeilis smá hjartastoppi áðan:!: skattaskýrslan! Mætti hér í afmælisboð pápa mín... gamli maður hvorki meira né minna en 57 í dag!:) þó svo að hann sé svona ansi lunkinn við grínið og var að enda við það að segja að hann væri rétt svo skriðinn yfir 27... svo kom svona smá hugsi hugs svipur á hann og hann segir ''rétt svo 17 ára''... húmor í honum:) haha... en já aftur að skattaskýrslunni ég fer eitthvað að ræða um það að ég þyrfti nú að fara að gera hana en væri nú ekki alveg með réttu sporin á hreynu... en ég þyrfti samt að skila henni fyrir 21 mars:) hey hann er sko ekki á morgun heldur hinn8| vá.. og ég vissi það ekki... hélt sko að það væru margir dagar í þetta... svo að ég fæ svona létt móðursíkiskast og fer að sjá fyrir mér reikning fyrir að skila henni svona seint! fæ svona léttar skammir fyrir kæruleysi;) en hvaða hvaða... ég fer nú sko að kenna helv... skattstjóranum um:) haha... svo ákveð ég nú bara að komast til botns í þessu máli og hringi í mömmu... heyrðu Úlfar var bara búinn að redda þessu fyrir mig;) ALDEILIS ÞJÓNUSTA! OG ÉG VISSI EKKI EINU SINNI AF HENNI:) FRÁBÆRT:)  

var að enda við að koma heim úr vinnunni:) og vá hvað ég er ekki að fara að verða sjoppudama í framtíðinni! dísjús kræst... ég er svo heimsk! en mér er alveg sama! greyin kúnnarnir.. en ég er nú svona aldeilis ú uppáhaldi hjá sumum:) en það sem er alveg að fara með mig að það eru tveir menn sem ég er svo skíthrædd við því ég er alltaf að gera vitlaysur þegar ég er að afgreiða þá að ég fer bara að kúka uppá bak!  einn þeirra er nú maðurinn sem tilkynnti pabba að ég væri búin að fæðast og hinn á í ástarsambandi við fyrrverandi mágkonu mína! Krakkinn hans henti líka í mig eggi! og það er sko ekki á hverjum degi sem ég verð fyrir eggjum! ég er bara grýtt í vinnunni! sérdeilis mikil föðurlandsástin hér á Patreksfirði! mér leið bara eins og eins og strektum hana! Sé þetta bara fyrir mér... ég haninn Hlöðugrímur... í alltof litlum gallabuxum sökum þess aðég er orðin svo feit... bundin við staur og allar hænurnar að henda í mig ólánuðum eggjum því ég er ekki frjó! ojjj.... svo var nú meiri hausverkurinn að þrýfa upp helvítis hvítuna...! en er að fara heim að ræða við mömmu um getnaðarvarnir eða eitthvað skemmtilegt... hver veit nema ég skelli mér bara í bað og skemmi húsið núna í eitt skipti fyrir öll! það fór nú nefnilega ekki vel í seinasta skipti sem ég fór í bað.. ógeðslega rómó.. með kerti og klæðin rauð og ætlaði svona að breyta til og raka á mér fótleggina en ég vissi ekki hvar af mig stóð veðrið þegar litlu systur mínar stukku á mig í baðinu og það var allt komið á flot niðri! það vara fosslak úr loftinu og allt á floti... ég skemmdi einhverja lögn:) aldeilis sem ég er endalaust flink við alla hluti:) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 01:28:51 / ólöf h

Ég stunda msn kynlíf

Ég kom mér í hann krappann og kaldann áðan maður minn:!: ég meina þetta var svo sem voðalega ótrúlega viðburðaríkur dagur eins og allir aðrir dagar hér á Patró... ég meina við hverju öðru er að búast... 8) Bjarnaveiðarnar ganga svona grimmt og hornveiðin eru svona enn að koma smá blóði í sporðinn eftir að hafa verið frekar kaldir í vetur en annars eru þessi krútt spræk:) en ég ákvað áðan eftir vinnu bara svona uppá góðmennsku mína að heimsækja ættingja:) nema hvað þetta voru engin önnur en pabbi og Ásdís kerla hans:) og viti menn héðan í frá er ég sko farin að tala undir rós! Ég komst að því að það eru ekki einungis bróðir minn Þór löggumann og Klara sem lesa bloggið..naunau bara pabbi og ásdís líka! aaaaaa! svo var bara eins og ég væri slegin í andlitið með blautri tusku að ég hefði nú verið með annsi skemmtilegt djók um að ég hefði verið alveg dauðadrukkin á Wig Wam:!:  æji... ég sem hélt að þeir einu sem myndu lesa þetta væru bara einfaldar sálir með tréskó á fæti og lambúsettu á höfði.. þannig að ég er að hugsa mér upp mjög flókinn dulkóða sem enginn mun skilja nema nokkrir vel valdir einstaklingar.. en með þeim dulkóða get ég sagt frá mikilli tedrykkju minni og mikilum áhuga mínum á Kristnifræði:) nenei... ég held að ég fari nú ekkert að breyta útaf mínum venjum:) ég meina þið getið bara kennt ykkur sjálfum upp! að hafa ekki hemil á góðu stúlkunni ykkar... ég er nú bara gull af manni;) en ekki hvað... mér finnst líka alveg óhemja hvað ég get lofsamað sjálfa mig:) ég elska mig bara svo mikið! get ekki að þessu gert... ég er bara svo auðelskanleg:) ég fer samt kannski að tala undir rós þegar amma og afi fara að commenta hjá mér... en það styttist óðum þau eru komin með internet tengingu og geta nú farið að flakka um á alheimsvefnum! eða allavega þegar þau fara að geta kveikt á henni sjálf;) en þá er eins gott að fara að halda sig á mottunni! en í allt annað!

Ég er farin að halda að ég sé búin að finna mína köllun í lífinu:) áðan var ég bara að labba mína leið heim..og nei heyri ég þá ekki í kisu í hremmingum! ég legg í svaðilför og bjarga greyinu frá risa ketti sem var ógeðslega stór! kannski ég hætti bara bjarnaveiðunum og ég meina þessi síli duga nú ekki einu sinni uppí nös á kétti svo að ég get bara einbeitt mér að því að bjarga dyralífum! Köllun ekki satt.. ég hef nú alltaf sagt að ég væri hinn eini sanni Jesú nr 2! og meina að hann þarf ekki að vera alveg eins og nr 1! hann bjargaði fólki og dó á krossi.. ég bjarga dýrum og læt lífið í... (kem ekki með neinar staðsetningar á því hér:!: ) ...... (meina alls ekki neitt með þessu svo að ekki taka þessu sem guðlasti)

Það vill svo vel til að ég er inná msn hérna núna.. og eitthvað perrakvikindi vill fara að klæmast í mér! sko þetta er ekki í fyrsta sinn á stuttum tíma sem eitthvað msn eða sms vændi er reynt hjá mér! ég skil ekki hvað það á að vera  spennadi! strákar.. svona er þetta bara.. alltaf uppá þeim typpin... en það eru misjafnar skoðanir manna.. ég verð bara að læta þetta... Jónína stundar svona;) svo að ég verð að læta;) haha.. ég fæ skammir fyrir þetta! eða ég sé allavega hvoert að hún lesi bloggið mitt eins og hún segir alltaf... en hvað um það.. ætla að binda endi á þetta spjall mitt við msn klám félaga minn:) svo fer littla skinnið bara í bælið:)..

svo eitt er ansalegt að ganga ekki í nærbrókum?


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9